Dansið Eða Deyið [Korean translation]
Dansið Eða Deyið [Korean translation]
Við erum Hatari
Við erum öll Hatari
Við erum varan og neytandinn
Við erum múrverkið og mótmælin
Við erum glæpurinn og böðullinn
Við erum Bastillan og við erum byltingin
Þrælar
Gengilbeinur ræningja
Sníkjudýr brauðmylsna
Tannlausu kjölturakkar
Blindingjar og aumingjar
Neytendur og klámhundar
Grindhoruðu betlarar
Marklausu peð
Leiksoppar hrægamma
Úrhrök
Sameinist, ómagar, bak í bak og dansið
Dansið, eða lútið oki kúgarans
Það er núna eða aldrei
Dansið eða deyið
Varpið hulunni af hendi myrkrahöfðingjans
Steypið af stóli þrælapískaranum og látið hann súpa
Eigið meðal
Sameinist, ómagar, og þrælið aldrei framar
Sameinist, ómagar, bak í bak og dansið
Dansið eða lútið oki kúgarans
Það er núna eða aldrei
Dansið eða deyið
Mín fagra kæra
Vertu hjá mér þegar allt mun brenna
Fylgi þér hvert sem er
Við munum saman líta
Hug minn klofna á enda veraldar
Fylgi þér hvert sem er
Mín fagra kæra
Vertu hjá mér þegar allt mun brenna
Fylgi þér hvert sem er
Mín fagra kæra
Vertu hjá mér þegar allt mun brenna
Fylgi þér hvert sem er
- Artist:Hatari