Ég á sér draum [I've Got a Dream] lyrics
Ég á sér draum [I've Got a Dream] lyrics
Ég er harðbrjósta og hrotti, mjólkin hleypur er ég glotti
Og ansi oft á mönnum kviðinn risti
Þó ég sé bölvuð blók, frekar skapillur, með krók
Ég hef alltaf þráð verða píanisti
Sérðu mig ekki uppi á sviði að Mozart
Og töfra úr fílabeini tónaflaum?
Ég vil miklu frekar spila en að valda aldurtila, takk fyrir
Því innst í mínu hjarta á ég mér draum
Hann á sér draum, hann á sér draum
Já, ég sýnist skárri ef gefur þú mér gaum
Þó ég brjóti gjarnan læri má ég biðja um tækifæri
Því eins og allir aðrir á ég draum
Ég hef ör og hnúð og þú sérð úr býli koma útferð
Og ekki er vert að nefna litaraftið
Þó ég hafi aukatær, sé með holdsveiki og flær
Þá þrái ég að binda hjónahaftid
Sérðu'ei mig í fangi föngulegra frauku?
Róandi á bát á lygnum straum
Þó mig megi kalla rusta, þá vil ég eitt, það er unnusta
Því innst í mínu hjarta á ég mér draum
Ég á sér draum, hann á sér draum
Ég á sér draum, hann á sér draum
Og ég veit að ástin þrífst við gleði'og glaum
Og þó mörgum þyki ég ljótur er ég samt til ásta fljótur
Og eins og allir aðrir á ég draum
Þór vill hætta og verða blómaskreytir
Gunni hannar innréttingarnar
Úlfur stundar látbragð, kökur Atla eru afbragð
Hrotti á prjón, Böðull nál, Svoli talar brúðumál
Og Vladimir er gefinn fyrir Príl og Prjál
Ég á líka draum, gúmorinn, bara ekki'eins voða væminn
Hann snýst um dæmdar líf í sól og svita
Á minni eigin eyju, leggjabrúnn í nýrri treyju
Já, umvafinn af peningum og hita
Ég á sér draum, hún á sér draum
Ég á sér draum, hún á sér draum
Ég vil bara sjá einn langan ljósastraum
Og ég braust úr mínu skurni er ég stökk úr háum turni
Því eins og öll þið hin á ég draum
Hún á sér draum, þau á sér draum, við á sér draum
Og við erum saman bundin þessum taum
Já þessum taum
Segðu oss brjáluð, rugluð, svartsýn eða fáranlega bjartsýn
Því innst í okkar hjarta á ég mér draum
Ég á sér draum, ég á sér draum
Ég á sér draum, ég á sér draum
Ég á sér draum, ég á sér draum
Já, innst í mínu hjarta á ég mér draum
- Artist:Tangled (OST)