On My Way [Icelandic] [Spanish translation]
On My Way [Icelandic] [Spanish translation]
Segið það öllum ég komi senn
og senn komi í áfangastað
Já, veðrið nú er viðri ögraði
Og ég veit ekkert betra en það
Segið það öllum ég komi senn
og svo sviflétt er nú hvert eitt skref
Já, sólskin á vegi og sólskinsbros
af sælu á vörum ég hef
Af því ekkert jafnast á við svona endurfund
og alveg gleymt hvað skildi okkur að
Okkar sögur munu vekja hlátur þinn
Þá fer hjarta mitt á flug
Já, segið þeim ég komi senn
að sjá gömlu vinina hér
Og svo vært ég úti sef undir stjörnuvoð
en vörð stendur máni yfir mér
Hvorki rok eða regn minni ró fá breytt
því alltaf skín sólin á ný
Og er vindur strýkur vanga þinn fer þitt hjarta á flung
og hvergi betra að vera en hér
Já, ég er að koma
Svo sannarlega
Ég er að koma
Segið það öllum ég komi senn
En samt þarf að bíða um sinn
En blátær er himinn og gatan greið
og gleðin er farangur minn
Segið það öllum ég komi senn
því söknuður dregur mig heim
Ég góðvini finn þar sem glóir sól
og gleðinni deili með þeim
Nú kem ég heim
Já, nú kem ég senn
- Artist:Brother Bear (OST)