Sýndu þig [Show Yourself] [English translation]
Sýndu þig [Show Yourself] [English translation]
Ég heyri, og ég er að koma
Sérhver taug í mér hún skelfur, samt er mér ei kalt
Eitthvað er hér kunnugt, eins og draumur sem sýnir mér ei allt
Finn að þú ert þar, hef ég þekkt þig alla tíð?
Þegar kem ég þar, verður heimaveran blíð
Ég hef alltaf verið klettur, köld leyndarmál ég ber
Leyndarmálin þín, ei fel þau fyrir mér
Sýndu þig, ég þrái að sjá þig
Sýndu þig, komið að þér
Ertu þá sú sem ég leitað hef að alla tíð?
Sýndu þig, þú kenna mátt mér
Nú fullvissuna finn ég, allt mitt líf verið mædd
En líf mitt hefur tilgang, var það vegna þess sem ég var fædd?
Ég venjuleg var aldrei, reglur giltu ekki þar
Er það í dag, með gleðibrag, ég loksins kemst að hvar?
Sýndu þig, ég skelf ekki lengur
Hér er ég, og gert er gert
Þú ert þá svarið sem leitað ég hef allt mitt líf
Ó, sýndu þig, lát mig sjá hver þú ert
Komdu til mín, opnaðu dyr
Tefðu mig ei andartak til
Komdu til mín, opnaðu dyr
Tefðu mig ei andartak til
Norðanvindur strýkur haf
þar er áin allra minninga
Komdu, ástin, heima er vært
Ég er hér
Sýndu þig, sýndu okkur nú mátt þinn
Breyttu þér, þér í eitthvað nýtt
Þú ert þá sú sem þú leitaðir
Gjörvallt mitt líf (gjörvallt þitt líf)
Sýndu þig
Þú
- Artist:Frozen 2 (OST)