Tóm tilviljun lyrics
Tóm tilviljun lyrics
Þegar að nóttin æðir yfir á ný
Eygi ég vonir og varlega smeygi mér í.
Smám saman færist ég allur í aukana oh, oh, oh,
Undarleg tilfinning grípur og grefur sér leið.
Þýtur í laufi, svignar einmanna strá,
Skuggaleg andlit, augu fara á stjá.
Ég geng eftir götunni, speglast í malbiki
Oh, oh, oh
Gái til veðurs og greiðlega held mína leið.
Þá allt í einu rofar til
Svo ótrúlega fljótt.
Ég hitti hana af tómri tilviljun.
Mæti henni, rekst á hana af tómri tilviljun.
Já ekki er allt sem sýnist segi ég þér.
Núna ég bíð uns máninn mætir á ný.
Á meðan ég tálga spýtu teljandi ský.
Ég hangi á horninu, speglast í glerinu oh, oh, oh,
Hinkra og vona að skóhljóðið heyrist í kvöld.
Ég reyni að standa í skugganum
En sumir skynja allt.
Ég hitti hana af tómri tilviljun.
Elti hana út um allt af tómri tilviljun.
En ekki er allt sem sýnist segi ég þér.
- Artist:Sálin hans Jóns míns
- Album:Hvar er draumurinn?